Icelandic
Birt: 2018-04-10 21:48:12 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Innherjaupplýsingar

Leiðrétting: VÍS: Jákvæð afkomuviðvörun

Drög að árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs sýna að vænt afkoma félagsins er hagstæðari en afkomuspá gerði ráð fyrir. Frávikið er tilkynnt sérstaklega þar sem það nemur meira en 10% af væntum hagnaði ársins fyrir skatta.

Væntur hagnaður félagsins á fyrsta ársfjórðungi fyrir skatta er um 930 milljónir króna en afkomuspá félagsins gerði ráð fyrir hagnaði upp á 276 milljónir króna á sama tímabili. Væntur hagnaður er því um 650 milljónum krónum hærri en afkomuspáin hafði gert ráð fyrir. 

Ástæðan fyrir þessu er að ávöxtun skráðra fjárfestingaeigna félagsins reyndist hagstæðari um sem nemur 350 milljónum króna umfram afkomuspá fyrir fjórðunginn og þá reyndist afkoma af vátryggingarekstri einnig umfram væntingar um sem nemur 300 milljónum króna fyrir sama tímabil. Góður árangur af vátryggingarekstri á fyrsta ársfjórðungi gerir það jafnframt að verkum að ekki gerist þörf á að uppfæra spá félagsins um samsett hlutfall fyrir árið þrátt fyrir tjón sem félagið ber vegna brunans sem varð í Miðhrauni 4 í síðustu viku.

Endurskoðuð áætlun félagsins gerir nú ráð fyrir að hagnaður ársins 2018 fyrir skatta verði 3.412 milljónir króna í stað 3.108 milljónir króna.

Þess má geta að þar sem eign VÍS í Kviku banka hf. er umfram 20% af útgefnu hlutafé Kviku reiknast sú eign samkvæmt hlutdeildaraðferð og hefur hækkun á markaðsvirði Kviku því ekki áhrif á þessa niðurstöðu. Munur á markaðsvirði Kviku og bókfærðu virði samkvæmt hlutdeildaraðferð er um 730 milljónir króna m.v. dagslokagengi þann 9.apríl.

Uppfærð rekstrarspá verður birt samhliða birtingu árshlutauppgjörs fyrsta ársfjórðungs þann 2. maí nk.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.