English Icelandic
Birt: 2018-04-06 12:03:21 CEST
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Íslandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Leiðrétting á frétt sem birt var 16:59 05.04.2018 GMT. Ástæða leiðréttingar er að samþykkt tilboð í 6 mánaða víxilinn voru ekki rétt. Tilboðum var tekið fyrir 1.760 m.kr. en ekki 1.800 m.kr. Í heild var tilboðum tekið fyrir 1.760 m.kr. í stað 1.800 m.kr

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.740 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.760 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.760 m.kr. á 4,33% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.400 m.kr. á bilinu 4,28% - 4,35%.

Í 12 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 340 m.kr. á bilinu 4,54%-4,70%. Öll tilboð voru afþökkuð.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 10. apríl.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Fyrirvari:
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis  að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.