Icelandic
Birt: 2018-03-31 19:46:13 CEST
Origo hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Origo hf. – Kaupréttaráætlun starfsmanna og viðskipti með eigin bréf

Á grundvelli kaupréttarsamninga félagsins og starsfmanna þess sem gerðir voru á grundvelli kaupréttaráætlunar sem tilkynnt var um þann 1. apríl 2016 hefur félaginu borist tilkynning frá starfsmönnum um innlausn kaupréttar á 6.610.123 hlutum á genginu 17,095.

Til þess að mæta skuldbindingum sínum samkvæmt samningunum mun stjórn félagsins gefa út nýtt hlutafé í samræmi við ákvæði samþykkta. Starfsmönnum ber að inna af hendi greiðslur fyrir innlausn hlutanna innan þriggja daga frá innlausnardegi, þ.e. fyrir lok dags þann 5. apríl. Að mótteknum greiðslum mun stjórn taka á fundi þann 6. apríl ákvörðun um útgáfu nýs hlutafjár og verður tilkynnt um endanlega fjárhæð hins nýja hlutafjár í kjölfarið.

Samkvæmt kaupréttaráætluninni nær hún til allra fastra starfsmanna samstæðunnar. Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í þremur áföngum á þremur árum frá gerð kaupréttarsamninganna. Samkvæmt áætluninni getur hver starfsmaður keypt hluti á grundvelli áætlunarinnar fyrir kr. 600.000 á ári og að lágmarki 10.000 á ári. Kaupverðið er vegið meðalverð í viðskiptum fyrir samningsdag sem er 31. mars ár hvert. Kaupréttaráætlunin var staðfest af ríkisskattstjóra 17. mars 2016 og er í samræmi við 8. tölulið 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Í dag 31.3.2018 gerðu 94 starfsmenn kaupréttarsamning um 2.279.709 hluti á genginu 24,74 samkvæmt þessari kaupréttaráætlun. Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í einum áfanga á einu ári frá gerð kaupréttarsamnings.

Eigin hlutir Origo í dag eru 150.983.

Sjá meðf. viðhengi.

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri fo@origo.is eða síma 862-0310.

ORIGO HF.

Origo. (NASDAQ OMX: Origo.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá samstæðunni starfa um 550 manns. Dótturfélög Origo eru TEMPO ehf og Applicon AB. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.origo.is

__________________________________________________________________________________________________________________________________________________________

Til athugunar fyrir fjárfesta:

Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.

 

 

 

2018.03.31 Viðskipti med eigin bréf sala og útgafa nýs hlutafjár

2018.03.31 Viðskipti með eigin bréf - kaupréttarsamningar


2018.03.31 Viskipti med eigin bref sala og utgafa nys hlutafjar.pdf
2018.03.31 Viskipti me eigin bref - kauprettarsamningar.pdf