English
Published: 2018-03-26 20:04:02 CEST
Ríkisútvarpið ohf.
Annual Financial Report

Ársreikningur Ríkisútvarpsins ohf. 2017

Ársreikningur Ríkisútvarpsins ohf.
Tilkynning 26. mars 2018

RÚV skilar jákvæðri rekstrarafkomu 2017
eins og síðustu ár

  • Áframhaldandi hallalaus rekstur hjá RÚV
  • Regluleg starfsemi skilar rekstrarafgangi upp á 201 m.kr.
  • Hagnaður vegna endanlegs uppgjörs á sölu á byggingarrétti nam 174 m.kr sem leiðir til þess að heildarhagnaður ársins  fyrir skatta nam 321 m.kr.
  • Margvíslegar breytingar á skipulagi og hagræðing hafa stuðlað að áframhaldandi jafnvægi í rekstri og skapað svigrúm fyrir öflugri dagskrá og skarpari almannaþjónustu
  • Sala á byggingarrétti leiðir til mestu skuldalækkunar í sögu félagsins og hagnaður ársins er nýttur í sama tilgangi.
  • Félagið er enn mikið skuldsett, aðallega vegna uppgjörs á eldri lífeyrisskuldbindingum.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins hefur batnað mikið á síðustu þremur árum og hækkar nú úr 23,8% í 26,1%

Helstu niðurstöður ársuppgjörs RÚV eru þær að regluleg starfsemi er RÚV áfram hallalaus og skilar rekstrarafgangi upp á 201 mkr. Að auki skilar endanlegt uppgjör á söluhagnaði vegna sölu á byggingarrétti viðbótarhagnaði á árinu upp á 174 mkr og því er rekstrarafkoma ársins í heild jákvæð um 321 m.kr fyrir skatta.

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri:

„Jákvæð niðurstaða ársins 2017 er sérstaklega ánægjuleg vegna þess að þetta er þriðja rekstrarárið í röð þar sem RÚV skilar hallalausum rekstri eftir umbótaferli, skipulagsbreytingar og markvisst hagræðingastarf frá árinu 2014 í kjölfar lækkunar útvarpsgjalds. Sala á byggingarrétti skilar mestu skuldalækkun í sögu félagsins og er rekstarafkoma ársins nýtt í sama tilgangi. Þennan árangur þökkum við öflugu starfsfólki RÚV og samstarfsaðilum. Árangurinn hefur náðst þrátt fyrir krefjandi rekstraraðstæður. Þjónustusamningur RÚV og mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem gildir til ársloka 2019 hefur skapað nauðsynlegan fyrirsjáanleika varðandi tekjur og skyldur RÚV til næstu ára. Ný staða RÚV hefur gert okkur kleift að bæta þjónustuna og sinna því leiðandi hlutverki sem RÚV ber í íslensku fjölmiðla- og menningarumhverfi.  Nýrri stefnu og skipulagi er ætlað að festa jákvæðar breytingar í sessi og grundvallar getu okkar til að takast á við nýjar krefjandi áskoranir í síbreytilegu fjölmiðlalandslagi þar sem öflugur almannaþjónustumiðill er mikilvægari en nokkru sinni fyrr.“

Rekstrargjöld án afskrifta voru 5.643 m.kr. en 5.414 árið 2016. Afskriftir voru 316 m.kr. samanborið við 308 m.kr. 2016. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 292 m.kr. en 221 m.kr. árið áður og munar þar mestu um gengisþróun krónunnar.

Heildareignir félagsins í lok árs 2017 námu 8.379 m.kr., eigið fé var 2.190 m.kr. og eiginfjárhlutfall 26,1% en var 23,8% í lok árs 2016.  Eiginfjárhlutfall hefur hækkað mikið að undanförnu en það var 5,5% í lok rekstrarársins 2013-2014.

Hagnaður af sölu byggingarréttar var að mestu leyti færður í ársreikning vegna ársins 2016. Tekjur af þessari sölu byggjast á endanlegu byggingamagni á lóðinni og lá það fyrir í byrjun árs 2018. Heildarsöluverð er 1.966 m.kr., sem er umtalsvert meira en varlegar áætlanir RÚV höfðu gert ráð fyrir í upphafi. Markmið RÚV með sölu byggingarréttarins var að greiða niður skuldir félagsins og hefur það gengið eftir og leitt til mestu skuldalækkunar í sögu félagsins. Félagið hefur haldið áfram niðurgreiðslu skulda eftir að lokagreiðslur bárust í ársbyrjun 2018 og hefur einnig ráðstafað hagnaði ársins af reglulegri starfsemi með sama hætti. Eftir sem áður er félagið mikið skuldsett.

Stöðugildi voru að meðaltali 260 á árinu en fjöldi þeirra hefur verið svipaður frá árinu 2015 eftir mikla fækkun á misserunum þar á undan. Útvarpsgjald var lækkað á nokkurra ára tímabili ásamt því að möguleikar á öflun tekna í gegnum sölu auglýsinga og kostana var takmarkaður.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður stjórnar RÚV:

„Ársreikningur RÚV ohf. fyrir árið 2017 liggur fyrir. Þriðja árið í röð skilar RÚV ohf hallalausum rekstri sem er fagnaðarefni. Þessum árangri hefur útvarpsstjóri ásamt samstarfsfólki sínu náð með skipulagsbreytingum og markvissu hagræðingarstarfi. Nýrri stefnu og skipulagi er ætlað að festa í sessi þessar jákvæðu breytingar og skapa svigrúm fyrir öflugri dagskrá og skarpari almannaþjónustu. Eigið fé og eiginfjárhlutfall RÚV fer hækkandi og skuldir lækka, þótt enn sé RÚV ohf mjög skuldsett. Niðurstöður ársreiknings RUV ohf sýna að vel er haldið á málum.“

Nánari upplýsingar veitir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri, s: 515 3000 



Arsreikningur Rikisutvarpsins ohf. 2017.pdf
RUV skilar jakvri rekstrarafkomu 2017 eins og siustu ar - frettatilkynning5.pdf