Icelandic
Birt: 2018-03-22 20:17:04 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Stjórn Reita hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar félagsins þann 13. mars 2018 tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlað er að kaupa allt að 16,5 milljónir hluta sem jafngildir 2,3% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.500 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst næstkomandi mánudag, 26. mars 2018, og mun áætlunin vera í gildi til 31. janúar 2019.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 492.562 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu febrúarmánaðar 2018.

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af Kviku banka hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.