English Icelandic
Birt: 2018-03-21 18:25:13 CET
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.600 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 1.700 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,49%. Heildartilboð voru 2.100 m.kr. á bilinu 2,43% - 2,50%. Heildarstærð flokksins verður 23.100 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 1.500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,52%. Heildartilboð voru 1.500 m.kr. á bilinu 2,46% - 2,52%. Heildarstærð flokksins verður 20.460 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 28. mars næstkomandi.

Íslandsbanki bauðst til að kaupa ISLA CBI 19 sem greiðslu upp í samþykkt tilboð í útboðinu. Engin slík viðskipti verða að þessu sinni.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 115.860 m.kr.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.