English Icelandic
Birt: 2018-03-16 12:24:23 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki lýkur víxlaútboði Frétt birt 2018-03-15 19:14:35

Leiðrétting: Samþykkt tilboð í 5 mánaða víxilinn námu 600 milljónum kr., ekki 500 milljónum kr. 


Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 35 tilboð upp á 5.940 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 3.020 milljónir kr.

Í heild bárust 12 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.640 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,25% - 4,36%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 600 milljónir á 4,32% flötum vöxtum.

Í heild bárust 20 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 4.080 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,20% - 4,37%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 2.520 milljónir á 4,33% flötum vöxtum.

Í heild bárust 3 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 220 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,55% - 4,79%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 mars.                      

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.