English Icelandic
Birt: 2018-03-15 19:29:18 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

15.3.2018 - Kauphöll

Orkuveita Reykjavíkur lauk í dag, 15. mars 2018, útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR. 

Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 3.075 m. kr. að nafnverði. 

Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 1.720 m. kr. á bilinu 2,78% - 2,91%. Tilboðum að fjárhæð 820 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,83%. 

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 1.355 m. kr. á bilinu 2,64% - 2,75%. Tilboðum að fjárhæð 755 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,70%. 

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. mars næstkomandi.


Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com