REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2018
Þriðjudaginn 13. mars 2018 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hótel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 15.00. Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins https://www.reitir.is/is/reitir/fjarfestayfirlit/adalfundir-reita 1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2017. 2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1,50 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2017 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 28. mars 2018, 15. mars 2018 er arðleysisdagur og 16. mars 2018 verður arðsréttindadagur. 3. Starfskjarastefna félagsins Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu, en hana má nálgast á vefsíðu Reita https://www.reitir.is/is/reitir/um-felagid/stjornarhaettir/starfskjarastefna 4. Heimild til kaupa á eigin hlutum Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum. 5. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum Tillaga um lækkun hlutafjár úr 721.356.201 kr. í 706.356.201 kr. og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt. 6. Kjör stjórnarmanna félagsins Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin: Elín Árnadóttir Kristinn Albertsson Martha Eiríksdóttir Thomas Möller Þórarinn V. Þórarinsson 7. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags Aðalfundur samþykkti að KPMG hf. yrði endurkjörið sem endurskoðunarfélag félagsins. 8. Ákvörðun um laun stjórnar og undirnefnda stjórnar fyrir komandi starfsár Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 340.000 kr. fyrir almenna stjórnarmenn og 680.000 kr. fyrir stjórnarformann. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 130.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 75.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í starfskjaranefnd verður 35.000 kr. á mánuði. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi. 9. Önnur mál Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 16.00.
|