English Icelandic
Birt: 2018-03-13 16:58:50 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 22 talsins og námu samtals 2.920 m. kr. að nafnverði.

Sjö tilboð að fjárhæð 820 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,43%-2,48%. Tilboðum að fjárhæð 480 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,45%. Heildarstærð flokksins verður 12.860 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimmtán tilboð að fjárhæð 2.100 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,48%-2,53%. Tilboðum að fjárhæð 1.900 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,52%. Heildarstærð flokksins verður 24.780 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 20. mars 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.