Icelandic
Birt: 2018-03-06 11:45:08 CET
TM hf.
Boðun hluthafafundar

Aðalfundur TM 15. mars 2018 - Endanlegar tillögur og ályktanir.

Samkvæmt samþykktum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hluthafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.  Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum en þær skulu hafa borist félagsstjórn eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn.
Eru endanlegar tillögur og ályktanir vegna aðalfundar TM 2018 því óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins 22. febrúar sl. að öðru leyti en því að einn liður í tillögum á breytingum á samþykktum félagsins hefur verið dreginn til baka varðandi 3. mgr. 19. gr. samþykkta um lengingu frests til að krefjast hlutfalls- eða margfeldiskosningar. 
Endanlegar tillögur og ályktanir fyrir aðalfund TM 2018 í heild sinni er að finna í meðfylgjandi viðhengi.

20180315 - aðalfundur TM - dagskrá og endanlegar tillögur


20180315 - aalfundur TM - dagskra og endanlegar tillogur.pdf