English Icelandic
Birt: 2018-03-05 16:44:19 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 180810, LBANK 180910 og LBANK 190311.

Heildartilboð í útboðinu voru 21 talsins og námu samtals 3.520 m. kr.

Fjögur tilboð að fjárhæð 700 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180810 og voru vextir tilboða á bilinu 4,24%-4,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 400 m. kr. á 4,24% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 98,2526.

Tólf tilboð að fjárhæð 2.500 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180910 og voru vextir tilboða á bilinu 4,20%-4,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 2.200 m. kr. á 4,34% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8530.

Þrjú tilboð að fjárhæð 320 m. kr. barst í flokkinn LBANK 190311 og voru vextir tilboða á bilinu 4,49%-4,60%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. mars 2018.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.