Icelandic
Birt: 2018-03-01 18:51:23 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 1. mars

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 1. mars 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Alls bárust tilboð í flokkana þrjá að nafnvirði 2.740 milljóna króna og var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 1.335 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 630 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,53% í flokknum REITIR151244 og að nafnvirði 705 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,10% í flokknum REITIR151124. Tilboðum í flokkinn REITIR 22 var ekki tekið.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur: Áður útgefið:  Eftir útgáfu nú:
REITIR151244 35.185.200.000 35.815.200.000
REITIR151124 3.720.000.000 4.425.000.000
REITIR 22 780.000.000 780.000.000

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð fimmtudaginn 8. mars 2018 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.