English Icelandic
Birt: 2018-03-01 16:40:00 CET
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Framkvæmd endurkaupaáætlunar

 

Stjórn Icelandair Group hf. hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd áætlun um endurkaup á eigin hlutum félagsins í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Ákvörðunin er tekin á grundvelli heimildar aðalfundar félagsins frá 3. mars 2017, sem veitti stjórn félagsins heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun þess efnis að kaupa á 18 mánuðum allt að 10% af eigin hlutum.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlun stjórnar nær til er að nafnverði kr. 50 milljón hlutir, sem samsvarar 1,00% af útgefnum hlutum í félaginu. Fyrir á félagið 139.460.000 hluti eða 2,79% af útgefnum hlutum. Fjárhæð endurkaupanna verður þó ekki hærri en 750 milljónir króna. Áætlunin gildir til og með 3. september 2018.  Kvika banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög og II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, ásamt síðari breytingum. Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 5.040.232 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í janúarmánuði síðastliðnum. Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki nema hæsta verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í Kauphöllinni, hvort sem hærra er.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

  

Frekari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801