Icelandic
Birt: 2018-02-25 20:09:52 CET
Festi hf.
Innherjaupplýsingar

N1 hf: Vegna kaupa N1 hf. á Festi hf.

Samkeppniseftirlitið hefur sent félaginu andmælaskjal vegna málsins

Þann 3. október 2017 var skrifað undir kaupsamning vegna kaupa N1 hf. á öllu hlutafé í Festi hf. Kaupsamningurinn byggir á viljayfirlýsingu sem N1 hf. og SF V slhf. skrifuðu undir þann 9. júní síðastliðinn um helstu skilmála viðskiptanna og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar á Festi hf.

Viðskiptin eru meðal annars háð skilyrðum um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 31. október 2017 skilaði félagið inn samrunaskrá til Samkeppniseftirlitsins sem hefur nú samkeppnisleg áhrif samrunans til rannsóknar.

Laugardaginn 24. febrúar 2018 kl. 19:31 barst N1 andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu, sem liður í málsmeðferð þess á samrunanum. Andmælaskjalið er ritað í þeim tilgangi að auðvelda samrunaaðilum að nýta andmælarétt sinn skv. stjórnsýslulögum og stuðla að því að rétt ákvörðun verði tekin í málinu. Skjalið felur í sér frummat Samkeppniseftirlitsins en felur ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun. Í skjalinu er frumniðurstöðu eftirlitsins lýst en hún er sú að samruninn raski samkeppni og verði ekki samþykktur af Samkeppniseftirlitinu án skilyrða.

Frestur N1 til að skila athugasemdum við andmælaskjalið er til kl. 12:00 þann 12. mars 2018.

Niðurstöður Samkeppniseftirlitsins eru væntanlegar 16. mars 2018 nema eftirlitið óski eftir viðbótargögnum til rannsóknar en þá væru niðurstöður væntanlegar þann 18. apríl 2018. Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki í lok 2. ársfjórðungs 2018.