Icelandic
Birt: 2018-02-15 16:35:35 CET
Lykill fjármögnun hf.
Ársreikningur

Lykill fjármögnun hf.: Ársreikningur

Afkoma Lykils fjármögnunar hf. á árinu 2017

 

Stjórn Lykils fjármögnunar hf. samþykkti ársreikning fyrir rekstrarárið 2017 þann 15. febrúar 2018.

Helstu lykiltölur ársreikningsins eru:

Heildar tekjur voru 2.616 m.kr. og hækkuðu um 9% frá fyrra ári.

Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu voru 1.319 m.kr. sem er 8,5% lækkun frá árinu 2016, en um 2,2% hækkun ef tekið er tillit til einskiptisliða s.s. dráttarvaxta.

Rekstrarkostnaður var 1.086 m.kr. og lækkar um 4,1% frá fyrra ári. Ef tekið er tillit einskiptisliðar á árinu 2016 nemur lækkunin 9,5% á milli ára.

Hrein virðisbreyting var jákvæð um 604 m.kr. sem er 17,2% lækkun frá fyrra ári.

Hagnaður ársins var 2.067 m.kr. sem er 51,9% hækkun milli ára, en þar af var  tekjuskattsinneign að fjárhæð 991 m.kr. tekjufærð á tímabilinu en áætlanir félagsins til næstu ára gera ráð fyrir að félagið geti nýtt inneignina á móti skattskyldum hagnaði.

Arðsemi eigin fjár var 16,4%.

Heildareignir í lok tímabilsins voru 31.778 m.kr. og jukust um 5.816 m.kr., eða 22,4%

Eigið fé í lok árs var 13.323 m.kr.

Reiknað eiginfjárhlutfall (CAD) er 46,6%.

Með hliðsjón af sterkri fjárhagsstöðu félagsins leggur stjórn til við hluthafafund að greiddur verði arður sem nemur 940 m.kr.

 

Frekari upplýsingar um félagið má finna á eftirfarandi slóð:

https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/


Lykill fjarmognun hf. arsreikningur samstu 2017.pdf