Icelandic
Birt: 2018-02-12 21:39:38 CET
Heimstaden hf.
Ársreikningur

Heimavellir hf.: Ársreikningur samstæðu 2017

Fréttatilkynning 12. febrúar 2018 - ársreikningur Heimavalla hf. fyrir árið 2017

Rekstrarhagnaður Heimavalla 2.716 milljónir kr. á árinu 2017

  • Leigutekjur á árinu 2017 námu 3.096 milljónum kr. (2016: 1.495 milljónir kr.) sem er ríflega tvöföldun frá fyrra ári.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 1.622 milljónum kr. (2016: 655 milljónir kr.) sem er aukning upp á 967 milljónir kr. á milli ára.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 3.845 milljónum kr. (2016: 3.152 milljónir kr.) sem er aukning um 693 milljónir kr. á milli ára.
  • Rekstrarhagnaður félagsins á árinu 2017 var 2.716 milljónir kr. í samanburði við 2.217 milljónir kr. árið áður.
  • Virði fjárfestingareigna í árslok 2017 var 53.618 milljónir kr. sem er aukning um 12.914 milljónir kr. á milli ára.
  • Eigið fé var 17.587 milljónir kr. í árslok 2017 (2016: 11.621 milljónir kr.) og var eiginfjárhlutfall félagsins 31,4%.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 34.938 milljónum kr. í lok árs 2017 (2016: 27.483 milljónir kr.).
  • Mikill vöxtur hefur einkennt starfsemi samstæðunnar og hélt sú þróun áfram á árinu 2017. Félagið tók 330 nýjar íbúðir í notkun á árinu og voru íbúðir þess þá alls orðnar um 2.000 í árslok.
  • Félagið hefur tryggt sér kaup á um 340 íbúðum sem koma í rekstur á þessu og næsta ári.
  • Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands (Nasdaq Iceland) um mánaðarmótin mars/apríl nk.

Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri:

"Ég er sáttur við rekstrarniðurstöðu félagsins á árinu 2017. Félagið hefur vaxið hratt og tekið yfir stór og krefjandi leigusöfn sem hefur gengið vel að samþætta annarri starfsemi félagsins. Reksturinn styrktist verulega á síðasta ári sem sést best á því að mánaðarleg velta hækkaði úr 230 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2017 í 290 milljónir króna á síðasta ársfjórðungi ársins. Þessi veltuaukning skilaði sér í bættum rekstri og afkomu. Við teljum okkur í góðri stöðu fyrir fyrirhugaða skráningu félagsins í Kauphöll."

Við horfum bjartsýn fram á veginn. Það er mikilvægt að geta boðið nýjar lausnir og valkosti eins og staðan er á húsnæðismarkaði í dag. Við erum markvisst að byggja upp leigumarkað þar sem fólk getur reitt sig á örugga langtímaleigu eins og þekkist í nágrannalöndum okkar. Þannig viljum við stuðla að fjölbreyttari og stöðugri húsnæðismarkaði á Íslandi. Áherslur félagsins verða þar sem þörfin er mest, þar á meðal íbúðir fyrir eldri borgara, en við erum einnig að skoða leiðir til að koma á markað litlum hagkvæmum leiguíbúðum sem mikil þörf er fyrir um þessar mundir."

Um 340 nýjar íbúðir hjá Heimavöllum á þessu og næsta ári

Hluti af þeim 340 íbúðum sem koma til afhendingar hjá Heimavöllum á þessu og næsta ári eru sérhannaðar fyrir eldri borgara. Þetta er nýjung hjá Heimavöllum til að bregðast við  þörf á fjölbreyttari úrræðum í húsnæðismálum fyrir þennan aldurshóp. Annars vegar er um að ræða 58 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum við Boðaþing í Kópavogi, í nágrenni við þjónustu fyrir eldri borgara á vegum Hrafnistu og Kópavogsbæjar. Hins vegar er um að ræða 18 íbúða fjölbýlishús fyrir eldri borgara við Jaðarleiti, á nýjum byggingarreit sunnan við Útvarpshúsið í Efstaleiti.

164 íbúðir í nýju hverfi við Hlíðarenda

Þá hafa Heimavellir fjárfest í 164 íbúðum í nýju hverfi við Hlíðarenda og kemur félagið þar til móts við stóran hóp fólks sem hefur áhuga á að komast í öruggt leiguhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar á árinu 2019. Alls verða um sex hundruð íbúðir á svæðinu  og er markmið skipulagsins að skapa hverfi með borgarbrag, með fjölbreytni í húsagerð, stórum sameiginlegum inngörðum og iðandi mannlífi.

Nýjar fjölskylduíbúðir í Hafnarfirði og stúdíóíbúðir við Ásbrú

Einnig eru að koma til afhendingar 47 íbúðir við Einivelli í Hafnarfirði. Um er að ræða góðar fjölskylduíbúðir í barnvænu og vinsælu hverfi. Þá verður framhald á verkefni sem hófst í fyrra að breyta setustofum í fasteignum Heimavalla á Ásbrú í stúdíóíbúðir. Í fyrra var 51 íbúð standsett en gert er ráð fyrir að þetta verkefni muni skila félaginu 36 nýjum stúdíóíbúðum til viðbótar næsta sumar.

Morgunverðarfundur 15. febrúar: "Ný hugsun á húsnæðismarkaði"

Heimavellir standa fyrir morgunverðarfundi kl 09:00-10:45 fimmtudaginn 15. febrúar nk. á Hilton Nordica við Suðurlandsbraut. Yfirskrift fundarins er "Ný hugsun á húsnæðismarkaði" og þar fjallar sænski hagfræðingurinn Anders Olshov frá Intelligence Watch um þróun húsaleigumarkaðar í Danmörku og Svíþjóð, Ásgeir Jónsson hagfræðingur og dósent við hagfræðideild Háskóla Íslands fjallar um stöðu og horfur á íbúða- og leigumarkaði á Íslandi, og Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla segir frá sýn Heimavalla á leigumarkaðinn á Íslandi. Fundarstjóri er Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Morgunverður verður í boði frá kl. 8:30.

Frekari upplýsingar veitir:

Guðbrandur Sigurðsson
Framkvæmdastjóri

gudbrandur@heimavellir.is
Sími 517 3440, GSM 896 0122

Nánar um Heimavelli

Heimavellir leigufélag býður fjölbreytt úrval leiguíbúða fyrir einstaklinga og fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land. Áhersla er lögð á örugga langtímaleigu, góða þjónustu og hagstætt verð. Félagið byggir á gömlum grunni en uppbygging þess hefur fyrst og fremst falist í sameiningu starfandi leigufélaga. Stefnt er að skráningu Heimavalla á hlutabréfamarkað um mánaðamótin mars/apríl 2018. Gert er ráð fyrir því að félagið verði við skráningu stærsta leigufélag landsins á almennum markaði með ríflega tvö þúsund leiguíbúðir í rekstri á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarnesi, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn, Grindavík og Reykjanesbæ.


Heimavellir hf. arsreikningur 2017 undirritaur.pdf