English Icelandic
Birt: 2018-02-08 09:42:38 CET
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2017

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2017, föstudaginn 9. febrúar 2018. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn mánudaginn 12. febrúar 2018 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/