English Icelandic
Birt: 2018-02-06 17:26:19 CET
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Flutningatölur janúar 2018

Í janúar var farþegafjöldi Icelandair 209 þúsund og jókst um 2% miðað við janúar á síðasta ári.  Framboð var aukið um 6%. Sætanýting var 72,2% samanborið við 73,6% í janúar í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru um 22 þúsund og fjölgaði um 10% á milli ára.  Framboð í janúar var 25% meira en í janúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Belfast sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í júní 2017 ásamt flugi á milli Keflavíkur og Akureyrar sem byrjaði í lok febrúar árið 2017.  Sætanýting nam 57,8%. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi var óbreyttur á milli ára. Fraktflutningar jukust um 42% á milli ára.  Skýrist það af auknum innflutningi til landsins, en einnig hefur verkfall sjómanna á Íslandi á síðasta ári áhrif á samanburðinn. Seldum gistinóttum hjá hótelum félagsins fækkaði um 3% á milli ára. Herbergjanýting var 67,3% samanborið við 69,2% í janúar 2017.

 

ICELANDAIR JAN 18 JAN 17 BR. (%)
Fjöldi farþega 209.398 205.734 2%
Sætanýting 72,3% 73,6% -1,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 907,0 855,2 6%
       
AIR ICELAND CONNECT JAN 18 JAN 17 BR. (%)
Fjöldi farþega 22.299 20.225 10%
Sætanýting 57,8% 62,2% -4,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 14,0 11,1 25%
       
LEIGUFLUG JAN 18 JAN 17 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 88,9% 11,1 %-stig
Seldir blokktímar 1.848 1.848 0%
       
FRAKTFLUTNINGAR JAN 18 JAN 17 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 10.498 7.398 42%
       
HÓTEL JAN 18 JAN 17 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 27.807 27.807 0%
Seldar gistinætur 18.708 19.234 -3%
Herbergjanýting 67,3% 69,2% -1,9 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - January 2018.pdf