English Icelandic
Birt: 2018-02-06 09:48:48 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Orkuveita Reykjavíkur, 2018-02-06 09:48 CET -- Orkuveita Reykjavíkur lauk í gær, 5. febrúar 2018, útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR. 

Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 3.230 m. kr. að nafnverði. 

Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 1.850 m. kr. á bilinu 2,74% - 2,90%. Tilboðum að fjárhæð 1.310 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,85%. 

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 1.380 m. kr. á bilinu 2,50% - 2,95%. Tilboðum að fjárhæð 475 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,70%. 

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. febrúar næstkomandi.

 

Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is. 

Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com