Icelandic
Birt: 2018-02-05 10:01:23 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 5. viku 2018 keyptu Hagar hf. 2.489.109 eigin hluti fyrir kr. 99.547.736 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
29.1.2018 09:34 1.181.592 39,00 46.082.088 63.403.952
30.1.2018 10:36 30.945 40,60 1.256.367 63.434.897
1.2.2018 09:47 500.000 41,00 20.500.000 63.934.897
1.2.2018 09:57 681.592 40,80 27.808.954 64.616.489
2.2.2018 14:42 40.980 41,15 1.686.327 64.657.469
2.2.2018 15:16 54.000 41,00 2.214.000 64.711.469
Samtals   2.489.109   99.547.736  

  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. nóvember 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 20.543.120 hluti í félaginu sem samsvarar 82,17% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 774.626.832 sem samsvarar 77,46% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 64.711.469 eigin hluti, eða 5,52% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.