English Icelandic
Birt: 2018-02-01 17:00:01 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 180710, LBANK 180810 og LBANK 190211.

Heildartilboð í útboðinu voru 30 talsins og námu samtals 3.400 m. kr.

Þrettán tilboð að fjárhæð 1.180 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180710 og voru vextir tilboða á bilinu 4,25%-4,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sextán tilboð að fjárhæð 2.120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180810 og voru vextir tilboða á bilinu 4,25%-4,37%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.000 m. kr. á 4,32% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8972.

Eitt tilboð að fjárhæð 100 m. kr. barst í flokkinn LBANK 190211 og voru vextir tilboðsins 4,55%. Þessu tilboði var ekki tekið.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. febrúar 2018.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.