Icelandic
Birt: 2018-01-19 11:51:56 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 3. viku 2018 keyptu Hagar hf. 1.806.740 eigin hluti fyrir kr. 71.602.548 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
18.1.2018 10:51 55.148 39,50 2.178.346 57.598.985
18.1.2018 13:21 570.000 39,50 22.515.000 58.168.985
19.1.2018 10:25 1.181.592 39,70 46.909.202 59.350.577
Samtals   1.806.740   71.602.548  
           

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. nóvember 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 15.182.228 hluti í félaginu sem samsvarar 60,73% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 556.541.522 sem samsvarar 55,65% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 59.350.577 eigin hluti, eða 5,07% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.