Icelandic
Birt: 2018-01-11 19:03:52 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Lykill fjármögnun hf. hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, LYKILL180716. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 520 m.kr. Heildareftirspurn í útboðinu nam 740 m.kr.

Víxlarnir voru seldir á 4,75% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er mánudagurinn 15. janúar 2018.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. höfðu umsjón með útboðinu.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 15. janúar 2018.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s:540 1700