English Icelandic
Birt: 2018-01-10 19:02:09 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.620 m. kr. og fjöldi tilboða var 13.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 48 bárust 8 tilboð að nafnvirði samtals 1.400 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,53% - 2,90%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 48 að fjárhæð 1.320 m.kr. á 2,90% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 1.320 m.kr. eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 5 tilboð að nafnvirði samtals 220 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,32%–5,40%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 22 að fjárhæð 200 m.kr. á 5,35% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 23.860 m.kr. eftir útgáfuna. 

Um er að ræða stækkun á þegar útgefna skuldabréfaflokknum ARION CB 22 sem hefur verið tekinn til viðskipta á Nasdaq Ísland auk nýs flokks ARION CBI 48. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 17. janúar 2018.

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 93.440 m. kr.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.