Icelandic
Birt: 2018-01-09 11:33:07 CET
Byggðastofnun
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skuldabréfaútboð – BYG 18 1

Mánudaginn 8. janúar 2018 hélt Byggðastofnun útboð á nýjum skuldabréfaflokki BYG 18 1. Útboðið var með hollensku sniði. Uppgjör viðskipta verður föstudaginn 12. janúar 2018.

Alls bárust tilboð að nafnverði kr. 5.890.000.000. Boðin var ávöxtunarkrafa á bilinu 2,14% til 2,48%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 2.000.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,35%.

Skuldabréfin bera jafnar greiðslur sem greiðast hálfsárslega og bera því 2,34% fasta verðtryggða vexti. Lokagjalddagi þeirra er 15. september 2032. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland fyrir lok janúarmánaðar 2018.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.  

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Helgason, forstöðumaður rekstrarsviðs
Sími: 455 5400
t-póstur: 
magnus@byggdastofnun.is