Lykill fjármögnun hf.: Útboð á víxlum 11. janúar 2018 Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á víxlum fimmtudaginn 11. janúar 2018. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki LYKILL180716. Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 fimmtudaginn 11. janúar nk. og uppgjör viðskipta fer fram þann 15. janúar 2018. Tilboðum skal skilað á netfangið markets@arctica.is. Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds víxlaflokks eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/ Nánari upplýsingar veita: Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145 Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566 Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s:540 1700
|