English Icelandic
Birt: 2018-01-03 18:37:43 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur nýjum víxlaflokkum; LBANK 180611, LBANK 180710 og LBANK 190110.

Heildartilboð í útboðinu voru 33 talsins og námu samtals 4.690 m. kr.

Tólf tilboð að fjárhæð 1.580 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180611 og voru vextir tilboða á bilinu 4,19%-4,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 960 m. kr. á 4,32% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 98,2087.

Sautján tilboð að fjárhæð 2.680 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180710 og voru vextir tilboða á bilinu 4,24%-4,36%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 640 m. kr. á 4,32% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8742.

Fjögur tilboð að fjárhæð 430 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190110 og voru vextir tilboða á bilinu 4,37%-4,58%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. janúar 2018.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar