English Icelandic
Birt: 2017-12-14 18:08:46 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 20 tilboð upp á 4.660 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.060 milljónir kr.

Í heild bárust 7 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.020 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,20% - 4,36%.  Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Í heild bárust 12 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.620 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,20% - 4,35%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.060 milljónir á 4,32% flötum vöxtum.

Í heild barst 1 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 20 milljónir kr., á 4,40% flötum vöxtum. Því tilboði var hafnað að þessu sinni

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 desember.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.