English Icelandic
Birt: 2017-12-14 17:23:33 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru nítján talsins og námu samtals 1.820 m. kr. að nafnverði.

Þrjú tilboð að fjárhæð 180 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,13%-5,20%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Tvö tilboð að fjárhæð 140 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,17%-5,19%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 5,19%. Heildarstærð flokksins verður 1.380 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Átta tilboð að fjárhæð 860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,52%-2,59%. Tilboðum að fjárhæð 580 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,57%. Heildarstærð flokksins verður 9.600 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sex tilboð að fjárhæð 640 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,40%-2,46%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,46%. Heildarstærð flokksins verður 19.960 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 21. desember 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref