Icelandic
Birt: 2017-12-12 18:04:41 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf. í söluferli

Klakki ehf., eigandi Lykils fjármögnunar hf., hefur ákveðið að hefja opið söluferli á félaginu. Stefnt er að því að nýir eigendur taki við félaginu á vormánuðum 2018.  Norræni fjárfestingarbankinn Beringer Finance hefur umsjón með söluferlinu en bankinn varð hlutskarpastur í valferli Klakka sem fram fór fyrr á þessu ári.

Lykill er sterkt og öflugt félag sem starfar á sviði eignafjármögnunar og fjármagnar bíla- og tækjakaup.  Félagið, sem starfar undir starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, var stofnað árið 1986 og hefur verið leiðandi á sínu sviði hér á landi. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Ármúla 1.

Klakki er eignarhaldsfélag í eigu innlendra og erlendra fjárfesta. Lykill er í dag langstærsta eign Klakka en flestar aðrar eignir félagsins, s.s. VÍS og Skipti, hafa verið seldar á síðustu árum.

---

Frekari upplýsingar veitir: Aðalsteinn Jóhannsson forstjóri Beringer Finance, sími +46 727 45 0880, email adalsteinn.johannsson@beringerfinance.com