Icelandic
Birt: 2017-12-11 18:22:54 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, LYKILL180615. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 800 m.kr. Heildareftirspurn í útboðinu nam 920 m.kr.

Víxlarnir voru seldir á 4,80% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er mánudagurinn 15. desember 2017.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. höfðu umsjón með útboðinu.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 15. desember 2017.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s:540 1700