Icelandic
Birt: 2017-12-11 16:43:32 CET
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Útboð á víxlum 18. desember 2017

Kvika banki hf. heldur útboð á víxlum bankans mánudaginn 18. desember 2017.

Í boði eru víxlar í 6 mánaða flokknum KVB 18 0621 að nafnvirði 2.000 m. kr. Útboðið er lokað og fer fram með hollensku fyrirkomulagi þar sem verð útboðsins ræðst af hæstu samþykktum flötum vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m. kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 mánudaginn 18. desember. Uppgjörsdagur er 21. desember 2017.

Hægt er að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með tölvupósti á vixlar@kvika.is til að fá nánari upplýsingar.