Icelandic
Birt: 2017-12-11 09:12:18 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 49. viku 2017 keyptu Hagar hf. 4.726.368 eigin hluti fyrir kr. 173.221.387 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
4.12.2017 11:49 1.181.592 37,00 43.718.904 46.531.533
6.12.2017 14:38 1.181.592 36,80 43.482.586 47.713.125
7.12.2017 15:06 1.181.592 36,40 43.009.949 48.894.717
8.12.2017 10:04 1.181.592 36,40 43.009.949 50.076.309
Samtals   4.726.368   173.221.387  

 

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. nóvember 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 5.907.960 hluti í félaginu sem samsvarar 23,63% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 217.176.610 sem samsvarar 21,72% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 50.076.309 eigin hluti, eða 4,27% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.