Icelandic
Birt: 2017-12-07 11:59:27 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg gefur út verðtryggðan skuldabréfaflokk

Reykjavíkurborg hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk með auðkennið RVK 32 1. Skuldabréfin eru verðtryggð með jöfnum greiðslum til 15 ára með greiðslu afborgana og vaxta á 6 mánaða fresti.

Seld hafa verið skuldabréf í flokknum að fjárhæð kr. 1.440.000.000 að nafnvirði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 2,58%. Flokkurinn er opinn að stærð og fyrirhugað er að hann verði stækkaður á komandi árum og að viðskiptavakt verði tekin upp með flokkinn.

Með þessari skuldabréfaútgáfu hefur Reykjavíkurborg gefið út skuldabréf vegna framkvæmda fyrir samtals 3.227 milljónir króna á árinu 2017. Útgáfuáætlun ársins 2017 hljóðar upp á 4.812 milljónir króna.

Kvika banki h.f. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111