Landsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðs Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki LBANK 180510 og nýjum flokkum, LBANK 180611 og LBANK 181210. Heildartilboð í útboðinu voru 12 talsins og námu samtals 1.540 m. kr. Engum tilboðum var tekið í útboðinu. Fjögur tilboð að fjárhæð 500 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180510 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,40%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Sex tilboð að fjárhæð 920 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180611 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,40%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Tvö tilboð að fjárhæð 120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181012 og voru vextir tilboða á bilinu 4,37%-4,65%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.
|