Icelandic
Birt: 2017-11-23 18:14:10 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstöður skuldabréfaútboðs 23. nóvember

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 23. nóvember 2017 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Alls bárust tilboð í flokkana þrjá að nafnvirði 1.690 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 200 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,50% í flokknum REITIR151244 og að nafnvirði 490 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,25% í flokknum REITIR151124. Tilboðum í flokkinn REITIR 22 var ekki tekið.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur:               Áður útgefið:      Eftir útgáfu nú:

REITIR151244     34.985.200.000     35.185.200.000

REITIR151124     3.230.000.000         3.720.000.000

REITIR 22            780.000.000               780.000.000

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð fimmtudaginn 30. nóvember 2017 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.