English Icelandic
Birt: 2017-11-21 15:52:11 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Skuldabréfaútgáfa í evrum

Landsbankinn hf. hefur í dag lokið sölu á nýjum 5,5 ára skuldabréfaflokki að fjárhæð 300 milljónir evra með lokagjalddaga í maí 2023 og bera skuldabréfin fasta 1,00% vexti. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 85 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði. Heildareftirspurn nam yfir 600 milljónum evra frá 70 fjárfestum. Skuldabréfin voru seld til stofnanafjárfesta í Bretlandi, meginlandi Evrópu, Norðurlöndum og Asíu.

Andvirði skuldabréfaútgáfunnar verður meðal annars nýtt til endurfjármögnunar evru-útgáfu bankans á gjalddaga í október 2018 í framhaldi af endurkaupatilboði bankans sem lýkur á föstudag, 24. nóvember 2017.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 29. nóvember 2017.

Umsjónaraðilar sölunnar voru Citigroup, Deutsche Bank, Morgan Stanley og Nomura. 

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Fjármála hjá Landsbankanum:

,,Mikil eftirspurn breiðs hóps fjárfesta í útgáfunni er til vitnis um mikið traust fjárfesta til Landsbankans og íslensks efnahagslífs. Útgáfan kemur í kjölfar nýlegrar hækkunar S&P Global Ratings á lánshæfiseinkunn bankans og er bankinn nú að fjármagna sig í erlendri mynt á betri kjörum og til lengri tíma en áður."   

Nánari upplýsingar veitir:

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310