English Icelandic
Birt: 2017-11-20 15:31:06 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Reikningsskil

Prýðileg rekstrarniðurstaða OR eftir níu mánuði

Reykjavík, 2017-11-20 15:31 CET -- Rekstrarkostnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu níu mánuði ársins 2017 var lægri en sömu mánuði í fyrra. Ytri rekstrarskilyrði hafa um margt verið hagstæð það sem af er ári og nam hagnaður fyrstu níu mánaðanna 10,5 milljörðum króna. Árshlutareikningur samstæðu OR fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2017 var samþykktur af stjórn í dag.

Rekstrarkostnaður fer lækkandi

Innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur eru, auk móðurfélagsins; Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Samanlagður rekstrarkostnaður fyrirtækjanna lækkaði frá fyrra ári. Í fjárhagsspá fyrir næsta ár, sem birt var 20. október síðastliðinn, er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður haldi áfram að lækka. Þetta skilar sér til viðskiptavina því á þessu ári hefur gjaldskrá fyrir kalt vatn lækkað og gjaldskrá fyrir dreifingu rafmagns lækkað tvisvar.

Álverð hefur hækkað

Verulegur hluti raforkusölu ON, dótturfyrirtækis OR, er tengdur álverði, sem hefur hækkað nokkuð frá áramótum. Þetta hefur skilað auknum tekjum á árinu. Samningar um raforkusölu til álbræðslu eru langtímasamningar og er áætlaður ábati á öllum samningstímanum færður til tekna í árshlutareikningnum. Þess vegna endurspeglar hin góða rekstrarniðurstaða tímabilsins ekki bara tekjuaukningu frá áramótum heldur einnig væntan tekjuauka, sem framtíðin mun leiða í ljós hvort skilar sér.

Lykiltölur fjármála á vef OR

Samhliða árshlutauppgjörum hefur Orkuveita Reykjavíkur gefið út lykiltölur fjármála. Þær eru nú á vef OR á slóðinni https://www.or.is/fjarmal/fjarmalafrettir/lykiltolur. Á vefnum er einnig að finna árshluta- og ársreikninga OR og dótturfyrirtækja fyrir síðustu ár.

Rekstraryfirlit stjórnenda

Fjárhæðir í milljónum króna F3 2013 F3 2014 F3 2015 F3 2016 F3 2017
           
Rekstrartekjur 28.806  26.960  28.768  29.921  31.310 
Rekstrarkostnaður  (9.794)  (9.195)  (10.535)  (11.785)  (11.744)
  þ.a. orkukaup og flutningur  (3.902)  (3.644)  (4.645)  (4.555)  (4.238)
           
EBITDA 19.012  17.766  18.234  18.136  19.566 
Afskriftir  (6.251)  (6.510)  (7.172)  (7.584)  (7.051)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 12.762  11.256  11.061  10.551  12.515 
           
Tekjuskattur tímabilsins  (620)  (2.257)  (3.421)  (3.593)
Afkoma tímabilsins 5.972  7.879  3.093  9.368  10.512 
           
Sjóðstreymi          
Innborgaðar vaxtatekjur 176  442  377  146  278 
Greidd vaxtagjöld 3.448  3.420  3.181  2.600  2.990 
Handbært fé frá rekstri 16.934  17.885  18.126  17.305  18.625 
Veltufé frá rekstri 14.973  12.677  14.734  14.853  15.080 
           
Fjárfesting rekstrarfjármuna (2.196)  (3.565) (7.323) (8.422)  (9.567) 
Afborganir vaxtaberandi skulda (20.561)  (13.913)  (11.977)  (12.681)  (13.835)  

 

         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 6100


OR Arshlutareikningur samstu F3 2017.pdf