English Icelandic
Birt: 2017-11-16 17:16:10 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 30 talsins og námu samtals 3.860 m. kr. að nafnverði.

Tvö tilboð að fjárhæð 120 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,18%-5,20%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sex tilboð að fjárhæð 540 m. kr. að nafnverði bárust í nýjan markflokk, LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,20%-5,34%. Tilboðum að fjárhæð 280 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 5,30%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m. kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 1.240 m. kr.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.800 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,60%-2,65%. Tilboðum að fjárhæð 400 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,61%. Heildarstærð flokksins verður 9.020 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.400 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,54%-2,57%. Tilboðum að fjárhæð 1.040 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,55%. Heildarstærð flokksins verður 19.320 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. nóvember 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref