English Icelandic

Þessi tilkynning hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að skoða leiðrétta tilkynningu

Birt: 2017-11-15 18:12:41 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 32 tilboð upp á 5.900 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 900 milljónir kr.

Í heild bárust 10 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.200 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,29% - 4,40%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 280 milljónir á 4,33% flötum vöxtum.

Í heild bárust 19 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 4.380 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,25% - 4,50%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 620 milljónir á 4,34% flötum vöxtum.

Í heild bárust 3 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 320 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,40% - 4,65%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 nóvember.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.