REITIR: Birting grunnlýsingar
Reitir fasteignafélag hf., kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 14. nóvember 2017, staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu 12 mánuði og hjá útgefanda í höfuðstöðvum félagsins að Kringlunni 4-12, Reykjavík.
Nánari upplýsingar um Reiti fasteignafélag hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu. Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirlitinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.
|