English Icelandic
Birt: 2017-11-06 17:20:21 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Leiðrétting - Niðurstöður víxlaútboðs - Frétt birt 2017-11-06 17:04:42 CET

Leiðrétting: Verð í flokki LBANK 180510 leiðrétt

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefna flokkinum LBANK 180410 og nýjum flokkum, LBANK 180510 og LBANK 181112.

Heildartilboð í útboðinu voru 14 talsins og námu samtals 1.820 m. kr.

Fimm tilboð að fjárhæð 600 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180410 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,40%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.100 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180510 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 420 m. kr. á 4,34% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8645.

Tvö tilboð að fjárhæð 120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181112 og voru vextir tilboða á bilinu 4,39%-4,65%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. nóvember 2017.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar