Icelandic
Birt: 2017-11-06 10:22:43 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 44. viku 2017 keyptu Hagar hf. 1.124.044 eigin hluti fyrir kr. 38.554.709 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
31.10.2017 15:24 174.450 34,30 5.983.635 41.693.087
2.11.2017 13:15 500.000 34,30 17.150.000 42.193.087
2.11.2017 13:15 449.594 34,30 15.421.074 42.642.681
Samtals   1.124.044   38.554.709  
           

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 23.474.332 hluti í félaginu sem samsvarar 93,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 835.253.945 sem samsvarar 83,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 42.642.681 eigin hluti, eða 3,64% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.