Icelandic
Birt: 2017-11-01 17:26:39 CET
Mosfellsbær
Fjárhagsdagatal

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2018 og næstu þrjú ár


Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2018 og næstu þrjú ár þar á eftir var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag.

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að tekjur nemi 10.550 m.kr., gjöld fyrir fjármagnsliði nemi 9.555 m.kr. og fjármagnsliðir 650 m.kr.

Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 318 m.kr. Áætlað er að framkvæmdir nemi 1.521 m.kr. og að íbúum fjölgi um tæplega 6 % milli ára.

Áætlunin gerir ráð fyrir að framlegð verði 12,5% og að veltufé frá rekstri verði jákvætt um 1.116 m.kr. eða um 10,6%.  Gert er ráð fyrir að skuldir sem hlutfall af tekjum muni lækka og að skuldaviðmið skv. sveitastjórnarlögum verði 99,4% í árslok 2017.


Nánari upplýsingar veita:

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 525 6700.

Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar, s. 840-1244, arnar@mos.is.

 


Fjarhagsatlun Mosfellsbjar 2018-2021 me greinagerum.pdf