Icelandic
Birt: 2017-10-30 10:11:13 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 43. viku 2017 keyptu Hagar hf. 2.848.782 eigin hluti fyrir kr. 98.590.357 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
24.10.2017 14:21 450.000 36,25 16.312.500 39.119.855
24.10.2017 14:23 200.000 36,20 7.240.000 39.319.855
24.10.2017 14:57 299.594 36,20 10.845.303 39.619.449
25.10.2017 09:30 500.000 33,50 16.750.000 40.119.449
25.10.2017 09:30 449.594 33,50 15.061.399 40.569.043
27.10.2017 15:06 483.400 34,10 16.483.940 41.052.443
27.10.2017 15:06 449.594 34,10 15.331.155 41.502.037
27.10.2017 15:06 16.600 34,10 566.060 41.518.637
Samtals   2.848.782   98.590.357  
           

  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 22.350.288 hluti í félaginu sem samsvarar 89,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 796.699.239 sem samsvarar 79,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 41.518.637 eigin hluti, eða 3,54% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.