Icelandic
Birt: 2017-10-25 19:05:40 CEST
Origo hf.
Reikningsskil

Nýherji hf. Uppgjör 3. ársfjórðungs 2017

266 mkr heildarhagnaður fyrstu níu mánuði ársins

Fjárfesting í lausnaþróun skilar ávinningi 

Helstu upplýsingar:

  • Sala á vöru og þjónustu nam 3.515 mkr á þriðja ársfjórðungi (2,5% tekjuaukning frá F3 2016) og 11.120 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 (5,4% tekjuaukning frá fyrstu níu mánuðum ársins 2016) [F3 2016: 3.429 mkr, 9M 2016: 10.555 mkr]
  • Framlegð nam 859 mkr (24,4%) á þriðja ársfjórðungi og 2.739 mkr (24,6%) á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 [F3 2016: 860 mkr (25,1%), 9M 2016: 2.676 mkr (25,4%)]
  • EBITDA nam 229 mkr (6,5%) á þriðja ársfjórðungi og 682 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 (6,1%)  [F3 2016: 247 mkr  (7,2%), 9M 2016: 686 mkr (6,5%)]
  •  Heildarhagnaður á þriðja ársfjórðungi var 29 mkr og 266 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 [F3 2016: 93 mkr, 9M 2016: 204 mkr]
  • Eiginfjárhlutfall var 45,2% í lok þriðja ársfjórðungs en var 43,8% í lok síðasta ársfjórðungs
  • Nýherji hf. kaupir Timian Software ehf.
  • TM Software ehf. kaupir hugbúnaðarlausn Dacoda fyrir bílaleigur
  • Verulegur eignarhlutur í Tempo ehf. settur í formlegt söluferli 

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Hagnaður var á þriðja ársfjórðungi og er heildarhagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins 266 mkr samanborið við 204 mkr í fyrra. Tekjur jukust lítillega á milli fjórðunga og nemur tekjuaukning ríflega 5% það sem af er ári.  Á sama tíma hefur launakostnaður aukist umfram vöxt tekna, sem nauðsynlegt er að bregðast við með frekari hagræðingu í rekstri.  Að því hefur verið unnið undanfarna mánuði, m.a. með nokkurri fækkun starfsfólks. Annar þáttur í frekari eflingu rekstrar felst í sameiningu Nýherja og dótturfélaganna TM Software og Applicon, sem munu starfa undir sama flaggi frá byrjun næsta árs.  Með sameiningu félaganna verður skipulag og lausnaframboð samstæðu einfaldað, sem mun gera okkur kleift að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini okkar og sækja betur samstíga fram á markaði. Að sama skapi þá mun sameining félaganna gera okkur kleift að hagræða í innviðum, samræma ferla og nýta mannauðinn betur. 

Sala á vörum og þjónustu var góð á tímabilinu en eigin hugbúnaðarlausnir stuðla áfram að tekjuvexti.  Kjarna, launa- og mannauðskerfi, hefur verið mjög vel tekið af viðskiptavinum og mikill áhugi er á CCQ (e. Cloud Compliance & Quality) sem fyrirtæki nýta til að styðja við innleiðingu gæðakerfa. Áfram er mikil eftirspurn eftir öryggislausnum, t.d. nota flestir af helstu bönkum landsins QRadar frá IBM til að vakta eigin kerfi. Sala á PC búnaði gengur sem fyrr vel og mjög mikill vöxtur er í sölu á hljóð- og myndlausnum frá NEC, Bose og Sony. Það er einnig gaman að sjá aukinn áhuga fyrirtækja á úthýsingu á rekstri upplýsingatækniinnviða, en tekjur af rekstrarþjónustu og ráðgjöf jukust um ríflega 20% á fjórðungnum.  

Kröftugur tekjuvöxtur var áfram hjá Tempo, 34% í USD það sem af er ári. Síðastliðið ár hefur verið unnið að undirbúningi á söluferli á félaginu í samstarfi við fjárfestingabankann AGC Partners, en því var formlega ýtt úr vör í síðustu viku. Markmiðið er að selja verulegan eignarhlut í Tempo og fá að félaginu samstarfsaðila með reynslu og þekkingu í uppbyggingu á alþjóðlegri hugbúnaðarstarfsemi. Þannig teljum við okkur geta stutt betur við vöxt og viðgang Tempo og skapað um leið aukið virði fyrir eigendur og viðskiptavini. 

Nýherjasamstæðan hefur styrkt stöðu sína verulega á undanförnum árum eins og eiginfjárhlutfall ber með sér. Við erum því nú í betri stöðu en oftast áður til að byggja upp til framtíðar og höfum þess vegna horft til möguleika á að styrkja lausnaframboð samstæðunnar, annars vegar með eigin lausnaþróun og hins vegar með kaupum á nýjum lausnum. Kjarni, CCQ, Saga sjúkraskrárkerfi og eigin viðbætur við bankalausnir frá SAP eru dæmi um eigin þróun sem hefur gengið vel. Við höfum fest kaup á lausnum sem falla vel að öðru lausnaframboði og eftirspurn frá viðskiptavinum, t.d. bílaleigukerfi frá Dacoda, sem við tengjum við flotastýringar- og leiðsögukerfi fyrir bílaleigur hjá TM Software og Timian, rafrænni innkaupalausn, sem með öðrum lausnum frá Applicon gerir viðskiptavinum kleift að auka verulega gagnsæi og hagkvæmni í innkaupum. Áfram verður horft til slíkra tækifæra í að efla lausnaframboð okkar og þjónustu við viðskiptavini.  

Við erum almennt sátt við stöðu samstæðunnar nú og framundan. Það eru vissulega ögranir í rekstrarumhverfinu, sem við munum halda áfram að takast á við, en tækifærin eru til staðar og félagið í sterkri stöðu til að nýta sér þau og vaxa áfram“.

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.

Sjá viðhengi.   


2017.10.25 - Frettatilkynning Arshlutauppgjor F3 2017.pdf
Nyherji arshlutareikn. 30.9.2017.pdf