Icelandic
Birt: 2017-10-23 11:05:59 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 42. viku 2017 keyptu Hagar hf. 954.534 eigin hluti fyrir kr. 85.058.313 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
16.10.2017 15:20 112.517 37,20 4.185.632 36.470.261
16.10.2017 15:22 500.000 37,15 18.575.000 36.970.261
16.10.2017 15:22 250.000 37,15 9.287.500 37.220.261
17.10.2017 09:30 500.000 36,70 18.350.000 37.720.261
19.10.2017 13:51 500.000 36,50 18.250.000 38.220.261
19.10.2017 13:51 449.594 36,50 16.410.181 38.669.855
Samtals   2.312.111   85.058.313  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 19.501.506 hluti í félaginu sem samsvarar 78,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 698.108.879 sem samsvarar 69,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 38.669.855 eigin hluti, eða 3,3% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.