English Icelandic
Birt: 2017-10-13 17:46:34 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

11% vöxtur í millilandaflugi árið 2018

  • Fjöldi farþega áætlaður 4,5 milljónir
  • Framborðnum sætiskílómetrum fjölgar um 11% á milli ára
  • Nýjar Boeing 737 MAX þotur teknar í notkun

Gert er ráð fyrir að flugáætlun Icelandair, dótturfélags Icelandair Group, fyrir árið 2018 verði um 11% umfangsmeiri en á þessu ári. Áætlað er að farþegar verði um 4,5 milljónir á árinu 2018 og muni fjölga um 400 þúsund frá yfirstandandi ári. Flug verður hafið til þriggja nýrra áfangastaða, Cleveland og Dallas í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi, auk Berlínar sem bætist við leiðakerfið nú í nóvember. Þá verður ferðum fjölgað til fjölmargra borga í Norður-Ameríku og Evrópu.

Snemma á næsta ári mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna. Þessi vöxtur mun hafa í för með sér áframhaldandi eflingu ferðaþjónustunnar á Íslandi og þar með efla vöxt og viðgang annarrar starfsemi innan Icelandair Group.

Áætlað er að framboðnum sætiskílómetrum fjölgi um 11% milli ára, en flugferðum í millilandaflugi fjölgar um 10%. Munurinn skýrist af hlutfallslega meiri aukningu í Ameríkuflugi en Evrópuflugi.

Icelandair kynnti nýverið nýjan valkost, Economy Light, sem gerir viðskiptavinum kleift að ferðast á lægra verði án þess að innritaður farangur sé innifalinn í verðinu. Þeir sem bóka Economy Light munu njóta sömu þjónustu um borð og aðrir farþegar og 10 kg handfarangur er innifalinn.

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group: „Við leggjum áfram áherslu á arðbæran innri vöxt í millilandaflugi félagsins á næsta ári en góður vöxtur hefur verið í leiðakerfinu undanfarin ár. Með nýjum valkosti, Economy Light, aukum við breiddina í þjónustuframboði okkar og komum til móts við mismunandi óskir á markaðnum. Á næstu 4 árum munum við fá alls 16 Boeing MAX flugvélar afhentar. Með tilkomu þeirra opnast fjölmargir möguleikar til að halda áfram að þróa nýja markaði og fjölga tengimöguleikum farþega okkar enn frekar.“

 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group  sími: 896-1455.
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group sími 665-8801.
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair sími 864-7177.