Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, LYKILL180416. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 600 m.kr. Heildareftirspurn í útboðinu nam 1.000 m.kr. Víxlarnir voru seldir á 4,90% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er mánudagurinn 16. október 2017. Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. höfðu umsjón með útboðinu. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 16. október 2017. Nánari upplýsingar veita: Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145 Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566 Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s:540 1700
|